Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Reykjanesbær: 14.500 fermetra verslunarmiðstöð í hjarta bæjarins?
Miðvikudagur 22. október 2003 kl. 19:02

Reykjanesbær: 14.500 fermetra verslunarmiðstöð í hjarta bæjarins?

Frumtillögur að nýrri 14.500 fermetra verslunarmiðstöð á lóð í hjarta Keflavíkur liggja nú fyrir. Tillögurnar verða kynntar formlega bæjarstjórn og skipulagsyfirvöldum í Reykjanesbæ á næstu dögum. Það er Steinþór Jónsson, hótelstjóri og athafnamaður, sem fékk Teiknistofu Halldórs Guðmundssonar, til að vinna frumtillögu að verslunarmiðstöðinni, sem hefur vinnuheitið Gullmolinn, með því markmiði að styrkja verslun og þjónustu í Reykjanesbæ.

Halldór Guðmundsson, arkitekt, skoðaði aðstæður á lóðinni, sem markast af Hafnargötu, Tjarnargötu, Klapparstíg og upp að Vallargötu. Nýja verslunarmiðstöðin mun, samkvæmt tillögunni, tengja saman hús Bústoðar, húsnæði Nóatúns, auk nýbygginga við Tjarnargötu og Hafnargötu. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að þrjú hús við Hafnargötuna verði látin víkja, þ.e. hús númer 22, 24 og 26. Þá gerir tillagan einnig ráð fyrir því að húsnæðið við neðanverða Hafnargötuna verði breytt, þar sem útbúinn verði inngangur neðanjarðar í verslunarmiðstöðina frá stóru bílastæði á nýju uppfyllingunni á Myllubakkanum.

Halldór Guðmundsson arkitekt sagði í samtali við Víkurfréttir að það væri draumur hvers sveitarfélags að eiga svona stórt byggingasvæði til að setja niður svona byggingu miðsvæðis. Á þessum stað er stutt í alla þjónustu, auk þess sem þarna er fyrir rótgróin verslun og þjónusta sem styður þessa skemmtilegu hugmynd. Í frumtillögunni er gert ráð fyrir verslunum á tveimur hæðum en á þeirri þriðju verða skrifstofurými og hugsanlegt íbúðahótel eða leiguíbúðir.

Steinþór Jónsson segir hugmyndina hafa verið lengi að þróast eftir að hann fékk augastað á þessari lóð, sem að hans sögn beið þess að vera uppgötvuð. Fyrir nokkrum mánuðum leitaði hann til Bjarna Marteinssonar arkitekts og fékk hann til að kanna hvort þessi hugmynd gæti gengið upp. Eftir að uppkast hans lá fyrir hefur Steinþór unnið að frekari útfærslum á verslunarmiðstöðinni sérstaklega með tilliti til bílastæða. Gert er ráð fyrir 105 bílastæðum í bílastæðakjallara og allt að 200 stæðum á Myllubakkanum þar sem inngangur í verslunarmiðstöðina verður einnig frá bakhlið Hafnargötu. Með þessu skapast skemmtilegt umhverfi við innganga verslunarmiðstöðvarinnar sem er að mestu leiti laus við bílaumferð. Þá eru í göngufæri frá verslunarmiðstöðinni tvö stór bílastæði sem myndu styðja hvort annað.

Það er margt mjög athyglisvert að gerast í bænum okkar og þegar þörf skapast fyrir verslunarrými er ljóst að skynsamlegra er að hafa það í miðbænum heldur en að búa til nýjan miðbæjarkjarna. Reykjanesbær er ekki það stór að hann myndi þola tvo verslunarkjarna. Í þessu samhengi má nefna nýja verslunarmiðstöð á Akureyri sem samkvæmt heimildum hefur heppnast ágætlega en hefur um leið skaðað miðbæinn og göngugötuna verulega, segir Steinþór. Það er mikilvægt að þessi hugmynd um staðsetningu verslunarmiðstöðvar verði skoðuð gaumgæfilega áður en lóðinni verði ráðstafað á annan hátt, enda lóðin gullmoli í miðbæ Reykjanesbæjar. Framkvæmdahraði mun ráðast af viðbrögðum bæjaryfirvalda og eigenda þeirra verslana, fyrirtækja og stofnana sem sjá hag sinn í því að staðsetja sig í miðbæ Reykjanesbæjar.
Þessa dagana er verið að vinna að stofnun félags um framkvæmdina en Steinþór hefur nú þegar verið í sambandi við hugsanlega fjárfesta og aðra hagsmunaaðila.

Tölvumyndir: Teiknistofa Halldórs Guðmundssonar. Götumynd: Götumyndin er unnin af ONNO ehf. fyrir Bjarna Marteinsson.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024