Bygg
Bygg

Fréttir

Reykjanesbær, Vogar og Sandgerði fá bréf Eftirlitsnefndar
Fimmtudagur 2. september 2010 kl. 12:17

Reykjanesbær, Vogar og Sandgerði fá bréf Eftirlitsnefndar

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent þremur sveitarfélögum á Suðurnesjum aðvörun vegna skuldsetningar og/eða slæmrar rekstrarafkomu og óskað eftir upplýsingum um hvernig sveitarstjórn hyggst bregðast við fjárhagsvanda sveitarfélagsins. Þetta eru Reykjanesbær, Sveitarfélagið Vogar og Sandgerðisbær. Um er að ræða sveitarfélög þar sem skuldir og skuldbindingar sem hlutfall af heildartekjum er umfram 200%.

Í júnímánuði sl. sendi Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga öllum kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum bréf með upplýsingum um verkefni eftirlitsnefndar. Þar er meðal annars gerð grein fyrir þeim viðmiðunum sem nefndin hefur sett sér um heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélaga svo og um framlegð rekstrar í A hluta reikningsskila sveitarfélaga. Er við það miðað að til frekari skoðunar komi á fjármálum sveitarfélags þar sem heildarskuldir eru yfir 150% af heildartekjum í A hluta reikningsskilanna, þ.e sveitarsjóðs. Auk þessa er litið til peningalegrar stöðu, framlegðar frá rekstri og fleiri þátta.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Eftirlitsnefndin hefur nú unnið upplýsingar úr ársreikningum allra sveitarfélaga í landinu fyrir árið 2009. Heildarskuldir og skuldbindingar A hluta reikningsskilanna hafa hækkað úr 105% af heildartekjum árið 2007 í 154% á árinu 2009 eða úr 171,6 milljörðum króna í 262,5 milljarða. Heildarskuldir A og B hluta, þ.e. samstæðu sveitarfélaga, hafa hækkað á sama tíma úr 165% af heildartekjum í 269% eða úr 336,6 milljörðum króna í 599,1 milljarð, sbr. meðfylgjandi töflu sem byggð er á ársreikningum sveitarfélaga fyrir árið 2009.

Samkvæmt ársreikningum sveitarfélaganna eru 22 sveitarfélög með skuldir umfram framangreinda viðmiðun eftirlitsnefndar í A hluta reikningsskilanna, þ.e. 150% af heildartekjum, en 30 sveitarfélög þegar litið er á bæði A og B hluta. Peningaleg staða þessara sveitarfélaga er þó mjög misjöfn vegna peningalegra eigna sem kunna að nýtast á móti skuldum. Á árinu 2009 var rekstrartap á A hluta hjá 38 sveitarfélögum.

Eftirlitsnefnd hefur sent 12 sveitarfélögum aðvörun vegna skuldsetningar og/eða slæmrar rekstrarafkomu og óskað eftir upplýsingum um hvernig sveitarstjórn hyggst bregðast við fjárhagsvanda sveitarfélagsins. Jafnframt hefur nefndin óskað eftir endurskoðaðri fjárhagsáætlun til næstu þriggja ára frá þessum sveitarfélögum. Um er að ræða sveitarfélög þar sem skuldir og skuldbindingar sem hlutfall af heildartekjum er umfram 200%.

Sveitarfélagið Álftanes er eins og kunnugt er í meðförum sérstakrar fjárhaldsstjórnar og því sendir Eftirlitsnefndin ekki sveitarfélaginu sérstaka aðvörun vegna fjárhagsstöðu þess. Niðurstaða ársreiknings 2009 hjá Sveitarfélaginu Álftanesi, sýndi að skuldir og skuldbindingar sem hlutfall af heildartekjum námu 518% og framlegð sem hlutfall af heildartekjum nam -0,3%. Þrjú næstu sveitarfélög á lista Eftirlitsnefndarinnar eru Reykjanesbær, Sveitarfélagið Vogar og Sandgerðisbær. Reykjanesbær er með prósentutöluna 397, Vogar með 389 og Sandgerði með 323% þegar teknar eru skuldir og skuldbindingar í prósentum af heildartekjum.

Á næstu dögum mun Eftirlitsnefndin senda um 10 öðrum sveitarfélögum aðvörun og óska eftir upplýsingum um aðgerðir til að draga úr skuldsetningu og til að bæta rekstrarafkomu. Eru það sveitarfélög þar sem skuldir og skuldbindingar sem hlutfall af heildartekjum er á bilinu 150-200%.