Reykjanes valið eitt af 100 sjálfbærustu áfangastöðum í heiminum
Reykjanes hefur verið valinn einn af 100 sjálfbærustu áfangastöðum í heimi árið 2017. Alþjóðlegu samtökin Green Destinations stóðu fyrir valinu en þeir hafa gert það undanfarin ár og að baki þeim eru sérfræðingar, fyrirtæki og stofnanir um allan heim.
Kjartan Már Kjartansson formaður stjórnar Markaðsstofu Reykjaness og Reykjanes UNESCO Global Geopark segir í samtali við Grindavik.is að um mikla viðurkenningu sé að ræða fyrir svæðið í heild sinni. „Mikil vinna hefur verið unnin við stefnumótun og uppbyggingu innviða á undanförnum árum hjá stoðstofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum á Reykjanesi sem nú er að skila sér. Öll verkefni sveitarfélaganna, Markaðsstofu Reykjaness og Reykjanes Geopark eru í þágu byggðaþróunar. Viðurkenningin er til marks um að við erum á réttri leið og hvatning til að halda vinnunni áfram."
Þá segir Þuríður H. Aradóttir forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness einnig á Grindavik.is að hún eigi von á því að viðurkenningin ýti undir áhuga ferðamanna að heimsækja svæðið. „Það að komast á lista sem sjálfbær áfangastaður er mikils virði fyrir okkur á Reykjanesi. Viðurkenningin sýnir mikilvægi þess að standa saman og vinna að sameiginlegum framtíðarmarkmiðum í ferðamálum í sátt við samfélagið. Við komum til með að halda þeirri vinnu áfram og hlökkum til að sýna afraksturinn."
Margir aðrir heimsþekktir áfangastaðir eru á lista Green Destination í ár og er Reykjanes eini íslenski áfangastaðurinn.