Reykjanes skelfur - Stærsti skjálftinn M3,4
Uppúr hádegi í dag jókst virkni aftur í jarðskjálftahrinu sem verið hefur í gangi nálægt Reykjanestá síðan 15. febrúar. Síðan kl. 16:30 hafa fjórir skjálftar yfir M3,0 mælst á svæðinu og var sá stærsti M3,4 að stærð kl. 16:49 samkvæmt fyrstu yfirferð.
Skjálftarnir eru staðsettir um 1 km N við Sýrfell. Um 150 skjálftar hafa mælst þar í dag og eru þeir þá orðnir um 1000 á svæðinu síðan 15. febrúar, langflestir þeirra undir 2,0 að stærð.
Árið 2013 var hrina á svipuðum slóðum en þá voru fleiri stærri skjálftar og var sá stærsti M5,2 að stærð.