Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Reykjanes Iceland Geopark
Þriðjudagur 14. febrúar 2012 kl. 11:01

Reykjanes Iceland Geopark

- Sveitarfélög á Suðurnesjum undirbúa stofnun jarðvangs á Reykjanesi

Sveitarfélögin Garður, Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Sandgerðisbær og Sveitarfélagið Vogar hafa skrifað undir samkomulag um stofnun jarðvangs á Reykjanesi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Undirbúningsnefnd um jarðvanginn mun hefja umsóknarferli til European Geoparks Network og ráðinn verður verkefnastjóri. Aðilum í ferðaþjónustu og vísindastarfi verður einnig boðin aðild að samstarfsnefndinni og munu sveitarfélögin leggja fram fjármagn í verkefnið árin 2012 og 2013. Jafnframt hefur fengist fjármagn í verkefnið frá Alþingi í gegnum Sóknaráætlun landshluta.


Bundnar eru vonir við að árangur verkefnisins skil sér í aukningu ferðafólks á svæðinu, eflingu vísindarannsókna, meiri samvinnu og uppbyggingu í ferðaþjónustu og dýpri og aukinni þekkingu á viðfangsefninu jarðvangur.


Vegna legu sinnar og áhugaverðra jarðsögu- og menningarminja er Reykjanes tilvalið svæði fyrir jarðvang. Víðtæk áhrif jarðhræringa eru áþreifanleg um nánast allt Reykjanesið með einum eða öðrum hætti. Jarðvangur myndi sýna á fjölbreyttan hátt samspil náttúru og menningar að fornu og nýju og jarðmyndanir með sérstöðu á heimsvísu. Áhersla er lögð á að nýta þá sérstöðu til áframhaldandi þróunar og uppbyggingar á Suðurnesjum.


Mynd: f.h. Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri Voga, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri Grindavíkur, Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri sveitarfélagsins Garðs og Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar.