Réttindaskóli UNICEF í Háaleitisskóla - hvatningarverðlaunin 2020
hlaut Hvatningarverðlaun Reykjanesbæjar 2020
Háaleitisskóli á Ásbrú hlaut Hvatningarverðlaun Reykjanesbæjar 2020 fyrir verkefnið „Réttindaskóli UNICEF“ en síðasta haust hóf Háaleitisskóli þátttöku í tilraunaverkefni sem miðar að því að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna inn í allt skóla- og frístunda-starf. Þetta er alþjóðlegt vottunarverkefni sem hefur síðastliðinn áratug verið innleitt með góðum árangri í þúsundum skóla um allan heim.
Elíza M. Geirsdóttir Newman, deildarstjóri eldra stigs í Háaleitisskóla og verkefnastjóri í verðlaunaverkefninu, sagðist afar ánægð með verðlaunin og sagði að starfið hafi gengið mjög vel á skólaárinu.
„Að vera Réttindaskóli UNICEF felur í sér að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er lagður til grundvallar í öllu skólastarfi. Markmiðið er að byggja upp lýðræðislegt námsumhverfi, efla jákvæð samskipti, auka þekkingu á mannréttindum og stuðla að gagnkvæmri virðingu innan skólasamfélagsins.
Réttindaskólinn passar vel inn í yfirlýsta stefnu Háaleitisskóla um að vera fjölmenningarskóli þar sem allir fá að vera eins og þeir eru. Hann stuðlar að betri líðan nemenda, valdeflingu, samkennd og samvinnu meðal nemenda og starfsfólks þar sem allar raddir fá að heyrast. Háaleitisskóli er fyrstur skóla á Suðurnesjum til að innleiða þessa stefnu og verður vonandi öðrum skólum til hvatningar,“ segir í umsögn Valgerðar Bjarkar Pálsdóttur, formanns fræðsluráðs Reykjanesbæjar, sem afhenti fulltrúum skólans Hvatningarverðlaunin en fjögur önnur verkefni voru tilnefnd og hlutu einnig viðurkenningu frá Reykjanesbæ.
Nítján umsóknir bárust
„Okkur bárust að þessu sinni nítján ábendingar frá almenningi og aðilum úr skólakerfinu og það sem verkefnin eiga sameiginlegt er að þarna eru stjórnendur, kennarar eða starfsfólk skóla að nýta nýsköpun til að gera eitthvað öðruvísi, ná til nemenda á óhefðbundinn hátt og hugsa út fyrir rammann.
Það er einmitt þetta atriði – nýsköpun – sem skólafólk í Reykjanesbæ er augljóslega alveg með á hreinu eins og sást í COVID-ástandinu. Það var aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig stjórnendur, kennarar og starfsfólk skólanna umbreyttu öllu skipulagi og kennsluháttum hérumbil á einum degi þegar samkomubann var sett á og við í fræðsluráði viljum þakka ykkur öllum fyrir ykkar framlag á þessum krefjandi tímum,“ sagði Valgerður Björk Pálsdóttir, formaður fræðsluráðs Reykjanesbæjar, við afhendingu verðlaunanna.
Kolbjörn Ivan Matthíasson og Sigrún Gyða Matthíasdóttir, leikskólastjóri, með viðurkenninguna.
Tilnefning til hvatningarverðlauna 2020
Hænurnar á Akri
Heiti verkefnis: Hænurnar á Akri.
Skóli sem það tilheyrir: Leikskólinn Akur.
Nöfn þeirra sem standa að verkefninu: Sigrún Gyða og starfsfólk leikskólans Akurs.
Lýsing á verkefninu: Starfsfólk leikskólans stóð að byggingu hænsnakofa á lóð skólans og hafa börnin fengið að fylgjast með ferlinu alveg frá því fyrstu eggin og ungarnir komu í hús. Börnin fá einstakt tækifæri til að kynnast dýrum og læra að umgangast þau. Á tímum COVID-19, þar sem börn komu minna í skólann, greip starfsfólk skólans á það ráð að setja inn upplýsingar, myndir og myndbönd af eggjunum/ ungunum á facebook hóp þannig að börn og foreldrar gátu fylgst með heiman að frá sér.
Jóhanna Helgadóttir og Jurgita Millerienė, kennarar í Háaleitisskóla.
Tilnefning til hvatningarverðlauna 2020
Lærum saman í gegnum orðin
Heiti verkefnis: Lærum saman í gegnum orðin.
Skóli sem það tilheyrir: Háaleitisskóli.
Nöfn þeirra sem standa að verkefninu: Jóhanna Helgadóttir og Jurgita Millerienė ásamt öðrum kennurum Háaleitisskóla.
Lýsing á verkefninu: Þetta er þróunarverkefni sem Jóhanna og Jurgita hófu haustið 2018 í samfélagsfræði með 6. bekk.
Tilgangur verkefnisins er:
• Að auka orðaforða nemenda.
• Efla orðskilning nemenda.
• Kenna nemendum aðferð í að auka eigin orðaforða.
• Skipuleggja vinnu með hugtökum fyrir nemendur með mismunandi námsgetu.
Verkefnið nýttist mjög vel skólaárið 2018-2019 í samfélagsfræði og fljótlega vildu aðrir kennarar taka upp aðferðina. Haustið 2019 innleiddu stjórnendur skólans hafa aðferðafræðina í öllum námsgreinum.
Inga Sif Stefánsdóttir og Árdís Jónsdóttir frá Tjarnarseli.
Tilnefning til hvatningarverðlauna 2020
Áskorun & ævintýri í garðinum okkar
Heiti verkefnis: Áskorun & ævintýri í garðinum okkar.
Skóli sem það tilheyrir: Tjarnarsel.
Nöfn þeirra sem standa að verkefninu: Kennarar, börn og foreldrar í Tjarnarseli.
Lýsing á verkefninu: Í janúar 2013 hóf þróunarverkefnið Áskorun og ævintýri göngu sína í Tjarnarseli sem fólst í að umbylta flötu útisvæði skólans í náttúrulegan garð þar sem áskoranir og ævintýri biðu barnanna dag hvern.
Markmið verkefnisins var að breyta útileiksvæði Tjarnarsels og skapa öruggt, náttúrulegt umhverfi sem hvetur börnin til leiks, rannsókna, sköpunar og hreyfingar.
Garðurinn er sífelldri þróun en í byrjun júní ár hvert er haldinn vinnudagur þar sem kennarar, börn, fjölskyldur þeirra og aðrir velunnarar skólans taka höndum saman og búa hann undir sumarið. Það er smíðað og lagfært, gróðursett og snyrt svo fátt sé nefnt.
Esther Níelsdóttir, Hjálmar Benónýsson og Guðný Kristjánsdóttir.
Tilnefning til hvatningarverðlauna 2020:
Bugsy Malone á sviði Heiðarskóla
Heiti verkefnis: Bugsy Malone á sviði Heiðarskóla.
Skóli sem það tilheyrir: Heiðarskóli.
Nöfn þeirra sem standa að verkefninu: Esther Níelsdóttir (leikstjóri - leikur og dans), Hjálmar Benónýsson (leikstjóri - leikur og söngur), Guðný Kristjánsdóttir (leikstjóri) og nemendur í árshátíðarleikriti.
Lýsing á verkefninu: Útfærsla á söngleiknum Bugsy Malone var sett á svið Heiðarskóla í vor. Rúmlega tuttugu nemendur tóku þátt og úrr varð tilkomumikil sýning með glæsilegum söng og dansatriðum. Í ár leit út fyrir að takmarkanir á skólastarfi í samkomubanni myndu koma í veg fyrir að söngleikurinn Bugsy Malone yrði settur á svið en einstaklega áhugasamir og metnaðarfullir nemendur og kennarar blésu til sóknar við afléttingu takmarkana og settu verkið á svið með miklum glæsibrag.
Sjáðu þessa mynd!
Það er ekkert mál að taka myndir á þessa síma í dag Helgi, sjáðu bara þessa! Kjartan Már, bæjarstjóri, og Helgi Arnarsson, sviðsstjóri fræðslusviðs, glugga í síma bæjarstjórans.