Ritstjórn skrifar
mánudaginn 9. september 2019 kl. 10:16
Réttindalausir í umferðinni
Tveir ökumenn sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af um helgina reyndust aldrei hafa öðlast ökuréttindi. Var þetta í annað sinn sem annar þeirra var stöðvaður réttindalaus.
Þá voru fáeinir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og einn til viðbótar var grunaður um fíkniefnaakstur.