Réttindalaus spólaði við slökkvistöð
Lögreglan á Suðurnesjum hafði um helgina afskipti af þremur ökumönnum sem allir voru réttindalausir. Til eins þeirra hafði sést þegar hann var að láta bifreið sína spóla við slökkvistöðina. Þegar piltur var tekinn tali kom í ljós að ökuskírteini hans var útrunnið. Þá fann hann ekki skráningarskírteini bifreiðarinnar, þrátt fyrir leit í henni. Honum var gerð grein fyrir því að hann mætti ekki aka réttindalaus og ef til hans sæist vera að spóla á bifreiðinni yrði hann sektaður fyrir það.
Annar ökumaður, karlmaður á þrítugsaldri, ók glaðbeittur um götur í umdæminu. Í ljós kom að hann hafði aldrei öðlast ökuréttindi, þegar lögregla ræddi við hann. Sá þriðji var með útrunnið ökuskírteini.