Rétt um frostmark í dag
Klukkan 6 var fremur hæg norðlæg átt og víða léttskýjað sunnan- og vestanlands, en stöku skúrir norðaustantil. Hlýjast var 7 stiga hiti á Ingólfshöfða, en kaldast 5 stiga frost á Brúsastöðum.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Norðan og norðaustan 3-10 m/s. Stöku skúrir eða él norðan- og austanlands, en dálítil slydda eða snjókoma í kvöld og nótt. Bjartviðri á Suður- og Vesturlandi, þó skúrir eða slydduél við suðausturströndina í kvöld og nótt. Hiti 0 til 8 stig að deginum, hlýjast syðst.