Restin af HF rifin
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að rífa móttökuhúsin að Hafnargötu 2, sem jafnan ganga undir nafninu HF. Húsin eru í lélegu ástandi en þar hefur síðustu ár verið tómstundastarf eins og golfæfingar og púttaðstaða.
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar segir í samtali við Víkurfréttir að ráðist verði í að rífa húsin síðar á árinu. Í ársbyrjun var hluti hússins rifinn en sá hluti varð eldi að bráð fyrir rúmum þremur áratugum og þak hússins fauk af í óveðri í desember og olli tjóni í gamla bænum í Keflavík.
Húsnæði Svarta pakkhússins mun standa áfram ásamt áföstum vélasal en þar eru gamlar frystivélar HF en vélasalurinn er einstakur á Íslandi og verðugur safngripur.
Þá er unnið að endurbótum á Fisherhúsi sem stendur á horni Hafnargötu 2. Skipt hefur verið um þak á húsinu og verið er að endurnýja klæðningu hússins og koma henni í upprunalegt horf.
Guðlaugur Helgi segir að nú sé unnið að því að finna þeim sem nú nýta þessa aðstöðu á Hafnargötu 2 annan stað fyrir starfið.