Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Rekstur Reykjanesbæjar á réttri leið
Miðvikudagur 9. nóvember 2016 kl. 10:31

Rekstur Reykjanesbæjar á réttri leið

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árin 2017 – 2022, var lögð fram þriðjudaginn 1. nóvember 2016 og fór til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi. Reykjanesbær leggur að þessu sinni fram fjárhagsáætlun til 6 ára, 2017-2022.

Í fjárhagsáætluninni kemur fram að í bæjarsjóði (A-hluta) batnar framlegð rekstrar verulega frá árinu 2015 sem og frá útkomuspá 2016 og verður um 1.511 m.kr. Í Sókninni sem var kynnt fyrir tveimur árum er gert ráð fyrir að framlegð úr rekstri bæjarins þyrfti að aukast um 900 m.kr. Rekstrarniðurstaða eftir afskriftir í bæjarsjóði er jákvæð og er um 1.117 m.kr.

Vegna skuldastöðu bæjarfélagsins eru fjármagnsgjöldin há m.a. að teknu tilliti til áætlaðrar verðbólgu sbr. Þjóðhagsspá og eru fjármagnsgjöldin áætluð 1.516 m.kr. í bæjarsjóði. Gert er ráð fyrir að fjármagn vegna nýframkvæmda verði 300 m.kr. Einnig er gert ráð fyrir að á árinu 2017 verði byggður nýr leikskóli og á árinu 2018 verði byggður 1. áfangi af nýjum grunnskóla.
Gert er ráð fyrir 1,6% íbúafjölgun árlega frá árinu 2017. Útsvar verður 15,05% á árinu 2017 en mun svo lækka aftur í 14,52% frá 1. janúar 2018.

Hvað varðar skuldir og skuldbindingar Reykjanesbæjar og dótturfyrirtækja (Reykjaneshöfn og Fasteignir Reykjanesbæjar) þá er í þessari fjárhagsáætlun gert ráð fyrir endurfjármögnun lána og leiguskuldbindinga.
Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
    •    Rekstrarniðurstaða samstæðu (A+B hluti) árið 2017 er neikvæð um 244 m.kr.
    •    Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs (A hluti) árið 2017 er neikvæð um 400 m.kr.
    •    Eignir samstæðu árið 2017 er 49,9 milljarða.kr.
    •    Eignir bæjarsjóðs árið 2017 er um 26 milljarða.kr.
    •    Skuldir og skuldbindingar samstæðu árið 2017 er 44,5 milljarða.kr.
    •    Skuldir og skuldbindingar bæjarsjóðs árið 2017 er 24,3 milljarða.kr.
    •    Veltufé frá rekstri samstæðu árið 2017 er 3.510 m.kr.
    •    Veltufé frá rekstri bæjarsjóðs árið 2017 er 1.370 m.kr.
    •     Framlegð samstæðu árið 2017 er 21,5%
    •    Framlegð bæjarsjóðs árið 2017 er 12%

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024