Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Reisa 150 herbergja Marriott flugvallarhótel
Yfirlitsmynd frá Aðaltorgi
Fimmtudagur 19. júlí 2018 kl. 09:24

Reisa 150 herbergja Marriott flugvallarhótel

Nýtt 150 herbergja Courtyard by Marriott flugvallarhótel verður opnað við Keflavíkurflugvöll á næsta ári. Fyrsta skóflustungan að hótelinu verður tekin í dag en framkvæmdir hefjast strax í kjölfarið og er fjármögnun verkefnisins að fullu lokið. Stefnt er að opnun hótelsins eftir rúmt ár eða haustið 2019. Forsvarsmenn hótelsins telja að mikill vöxtur í tengiflugi í gegnum Keflavíkurflugvöll kalli á stórt flugvallarhótel undir alþjóðlegu vörumerki. Marriott er stærsta hótelkeðja heims með yfir 6500 hótel og 30 vörumerki í rekstri. Þar af eru rúmlega 1.100 Courtyard hótel og er þau meðal annars að finna við helstu flugvelli í Evrópu. Þá er Marriott keðjan einnig um þessar mundir að undirbúa opnun fimm stjörnu hótels við hlið Hörpu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Horft frá hótellóðinni á flugstöðina

Sérleyfishafi Courtyard hótelsins verður hið íslenska Capital Hotels sem þegar rekur fjögur hótel í Reykjavík og eitt í Borgarnesi. Courtyard by Marriott hótelin eru þriggja stjörnu. Gestir hafa aðgang að fjölbreyttri funda- og veitingaaðstöðu, verslun sem er opin allan sólarhringinn og bistró-veitingastað auk líkamsræktaraðstöðu. Stutt er frá hótelinu að athafnasvæði allra helstu bílaleiga við flugvöllinn.
Byggingaraðili hótelsins er fyrirtækið Aðaltorg ehf. í Reykjanesbæ en fyrsti áfangi í fasteignaþróun félagsins við samnefnt Aðaltorg var eldsneytisstöð og hóf Olís rekstur ÓB stöðvar á svæðinu síðastliðið haust.  Annar áfangi er bygging hótelsins en í þriðja áfanga hyggst félagið reisa fjölbreytt verslunar- og þjónusturými. Alls á fyrirtækið byggingarétt upp á tæpa 25.000 m2 á lóðinni sem er við Reykjanesbraut rétt áður en komið er að flugstöðinni. Ekið er inn á lóð hótelsins frá Aðalgötu en hún liggur frá Reykjanesbrautinni og sem leið liggur niður í miðbæ Reykjanesbæjar.

Staðsetning hótelsins

„Þetta er stór áfangi að fá Marriott þarna inn á Aðaltorg. Kveikjan kom þegar ISAVIA kynnti framtíðarhugmyndir sínar varðandi uppbyggingu flugvallarsvæðisins. Þróun Aðaltorgs hefur staðið yfir undanfarin tvö ár og er liður í frekari uppbyggingu á þjónustu í kringum alþjóðaflugvöllinn. Samið hefur verið við Íslenska aðalverktaka um byggingu hótelsins og framkvæmdir hefjast strax. Það liggur fyrir glæsileg framtíðarsýn um þróun flugvallarsvæðisins og það er afar áhugavert fyrir okkur í Reykjanesbæ að koma að þeirri uppbyggingu,“ segir Ingvar Eyfjörð, framkvæmdarstjóri Aðaltorgs.

„Fyrir okkur hjá Capital Hotels er það mikill heiður að hafa orðið fyrir valinu til að reka fyrsta sérleyfishótel Marriott á Íslandi.  Þetta verður veglegt flugvallarhótel fyrir viðskiptafarþega og fjölskyldufólk í ferðum sínum um Keflavíkurflugvöll.  Ísland hefur stimplað sig inn sem einn eftirsóttasti áfangastaður heims og þá hefur flugvöllurinn góða möguleika á að verða enn mikilvægari tengipunktur í flugi milli heimsálfa á næstu árum. Það er mikil þekking sem Marriott kemur með enda stærsta hótelkeðja heims. Á móti höfum við mikla reynslu af rekstri hótela í þessum verðflokki hér á landi. Við höfum staðfasta trú á Íslandi sem áfangastað til langs tíma,“ segir Árni Sólonsson, framkvæmdastjóri sérleyfishafans Capital Hotels.

Nánar um Courtyard by Marriott http://courtyard.marriott.com/amenities