Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Reiknað með 411 milljóna rekstrarhalla
Ráðhús Reykjanesbæjar.
Miðvikudagur 17. desember 2014 kl. 09:28

Reiknað með 411 milljóna rekstrarhalla

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar lögð fram á bæjarráðsfundi í gær.

Fjögurra ára fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2015 – 2018 var lögð fram á bæjarráðsfundi í gær. Árið 2015 er reiknað með að rekstrarhalli samstæðunnar verði 411 milljónir króna en strax á árinu 2016 hafi viðsnúningur orðið þannig að rekstrarafgangur verði 257 milljónir króna. Rekstrarafgangur samstæðunnar árið 2017 verður 409 milljónir króna samkvæmt áætluninni og loks gerir fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 ráð fyrir 820 milljóna króna rekstrarafgangi.

Við gerð fjárhagsáætlunar bæjarins er fylgt stefnu undanfarinna ára um að ákveðnum málaflokkum og stofnunum eru veittar heildarfjárveitingar. Þannig er gengið út frá því að stjórnendur sviða og stofnana hafi bestu forsendur til að vinna úr þeim verkefnum sem ákveðið er að framfylgja og leiti jafnan hagkvæmustu leiða til framkvæmda. Ábyrgðin verður jafnframt skýrari og í rekstri málaflokka myndast athafnafrelsi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Við gerðum eina veigamikla breytingu við vinnu fjárhagsáætlunar næstu fjögurra ára. Eins og bæjarbúar vita vann KPMG að viðamikilli fjárhagsúttekt á bæjarfélaginu og var niðurstaðan kynnt fyrir bæjarráði og samþykkt þar með öllum atkvæðum. Við kynntum því næst Sóknina, áætlun um fjárhagslega endurreisn Reykjanesbæjar og var hún nýtt við fjárhagsáætlunarvinnuna og jafnframt var í fyrsta sinn notað fjárhagsáætlunarlíkan sem hannað er af KPMG. Við bindum miklar vonir við þessa aðferð sem mun skila sér í nákvæmari og betri áætlun,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri.

Nánari upplýsingar og skjöl má sjá hér