Reiður hundaeigandi slasaði tvo lögreglumenn í Reykjanesbæ
Lögreglumenn þurftu að fara inn í bílskúr í Reykjanesbæ í gærmorgun til að fjarlægja þaðan hund. Í dagbók lögreglu segir að eigandinn hafi farið í tjaldútilegu deginum áður og skilið hundinn eftir. „Við lögreglumönnunum blöstu ömurlegar aðstæður. Ekkert fóður né vatn var hjá hundinum og hland og saur á gólfinu. Fengust þær upplýsingar að hundurinn væri alltaf hafður í bílskúrnum og lítið sem ekkert sinnt,“ segir lögreglan á vefsvæði sínu.
Hundurinn var tekinn í vörslu lögreglunnar og mun embætti héraðsdýralæknis og Umhverfisstofnun fá málið til skoðunar.
Eigandi hundsins kom svo heim síðdegis og hafði samband við lögreglu þar sem hann var verulega ósáttur við að hundurinn var fjarlægður. Reynt var að útskýra málið fyrir honum en hann brást illur við og réðist á lögreglumann. Þurfti því að handtaka manninn og meiddust tveir lögreglumenn í átökum við hann og þurftu að leita læknisaðstoðar. Maðurinn var færður í fangageymslu þar sem hann beið yfirheyrslu.
Hundurinn á myndinni tengist ekki fréttinni.