Regína Fanný ráðin fjármálastjóri Reykjanesbæjar
Regína Fanný Guðmundsdóttir, löggiltur endurskoðandi og deildarstjóri reikningshalds hjá Reykjanesbæ, hefur verið ráðin fjármálastjóri Reykjanesbæjar. Regnína hefur sinnt störfum fjármálastjóra í tímabundinni ráðningu frá því desember 2018 þegar fyrrverandi fjármálastjóri lét af störfum. Áður starfaði hún m.a. hjá BYR og fleiri fjármálastofnunum.
Regína hóf störf sem deildarstjóri reikningshalds hjá Reykjanesbæ í upphafi árs 2015 og hefur tekið virkan þátt í stjórnendateymi Reykjanesbæjar undanfarin misseri. Hún tekur við starfi fjármálastjóra 1. ágúst nk.

 
	
				

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				