Fimmtudagur 16. maí 2002 kl. 03:10
Refur lést á kvöldgöngu

Ökumaður varð fyrir því óláni að keyra á ref, sem var að spássera á Reykjanesbraut við Grindavíkurafleggjara.Refurinn lést samstundis en ökumaður óskaði eftir aðstoð við að fjarlægja hræið af slysstað.