Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Réðist inn í hús í Sandgerði
Laugardagur 27. ágúst 2005 kl. 15:10

Réðist inn í hús í Sandgerði

Nokkur erill var á næturvakt lögreglunnar í Keflavík í nótt.

Lögregla var kölluð að húsi í Sandgerði þar sem einn aðili var handtekinn eftir að hafa reynt að komast inn í húsið óboðinn.
Hafiði hann lent í útistöðum við húsráðanda fyrr um kvöldið.

Síðar um nóttina var tilkynnt um rúðubrot í bænum, en grjóti hafði verið kastað inn um rúðuna. Ekki er vitað hverjir voru þar að verki.

Maður var fluttur á slysadeild HSS á fimmta tímaynum í morgun eftir að hafa lent í slagsmálum á Casino. Var hann sleginn í andlitið og var nefbrotinn auk þess sem sauma þurtfi í hann tvö spor.

Hann fékk að fara heim að skoðun lokinni og er ljóst hver gerandi var, þar sem vitni voru að atburðinum.

Fyrr um kvöldið var annar aðili fluttur á slysamótttöku, en sá hafði fallið niður stiga á Ránni og fékk áverka á gagnauga. Þeir reyndust ekki alvarlegir og fékk viðkomandi að fara heim eftir skoðun. Aðilinn var ölvaður að því er fram kemur í dagbók lögreglu

Þá var tilkynnt um að neyðarblys hafi sést á lofti út af Vogum stuttu eftir miðnætti. Einnig  höfðu lögreglumenn sem voru á eftirliti í Vogum séð blysið. Virtist því hafa verið skotið frá hafnarsvæðinu. Ekki er vitað hver það gerði.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024