Rauðvínið reyndist innhalda annað frá Barcelona
Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum hefur til rannsóknar fíkniefnamál sem upp kom fyrr í mánuðinum þegar íslenskur karlmaður á sextugsaldri reyndi að smygla rúmlega einum og hálfum lítra af amfetamínvökva inn í landið. Maðurinn var að koma frá Barcelona á Spáni þegar tollverðir stöðvuðu hann í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í farangri hans voru tvær 780 millilítra rauðvínsflöskur sem reyndust innihalda amfetamínvökvann.
Maðurinn sætir nú gæsluvarðhaldi og miðar rannsókn málsins vel.
Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.