Bygg
Bygg

Fréttir

Rannsóknir sýna fram á góðan árangur
Fimmtudagur 5. maí 2005 kl. 16:36

Rannsóknir sýna fram á góðan árangur

Rannsókn sem framkvæmd var í Þýskalandi sýnir að BLUE LAGOON húðvörurnar sem þróaðar hafa verið úr efnum BLUE LAGOON jarðsjávarins skila mjög góðum árangri við meðferð psoriasissjúklinga, bæði þegar þær eru notaðar einar sér og eins þegar þær eru notaðar sem hluti af fjölþættari meðferð.

Rannsóknirnar voru framkvæmdar af Professor Ulrich Amon, yfirlækni á PsoriSol-Clinic í Hersbruck, sem er eitt stærsta psoriasissjúkrahús í Þýskalandi. Hann hefur notað vörurnar bæði einar sér og sem hluta af fjölþættari meðferð. Professor Amon kynnti niðurstöður rannsóknanna á ráðstefnu sem haldin var í Bláa Lóninu - heilsulind nýverið þar sem 20 þýskir húðlæknar voru meðal ráðstefnugesta. Niðurstöður rannsóknanna sýna m.a. fram á að vörurnar draga úr hreistursmyndun og ertingu í húð.
Niðurstöður hans sneru annars vegar að því hvernig sjúklingunum líkaði við vörurnar og hvaða áhrif þeir teldu að þær hefðu. Hins vegar eru þetta fyrstu niðurstöður af ákveðnum rannsóknum þar sem blandað er saman BLUE LAGOON  vörum, leysimeðferðum og fleiri þáttum.  Niðurstöður rannsóknanna lofa góðu og sýna fram á áhrifamátt varanna.
Eftirfarandi vörur voru notaðar í rannsókninni; sölt, kísill og rakakrem. Vörurnar voru þróaðar með þarfir psoriasissjúklinga í huga og hafa allt frá byrjun verið notaðar sem hluti af BLUE LAGOON meðferðinni. Almennt talað sýndi það sig að vörurnar  skiluðu mjög góðum árangri bæði einar sér og sem einn þáttur í fjölþættari meðferð.
Bílakjarninn
Bílakjarninn