Rannsóknasetur í orkuvísindum stofnað á Ásbrú
Í dag undirrituðu Háskóli Íslands, Keilir, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, HS Veitur og HS Orka hf. samstarfssaming um uppbyggingu rannsóknaseturs í orkuvísindum. Samstarfið felur í sér að byggja upp á Ásbrú aðstöðu til þess að stunda rannsóknir á sviði orkuvísinda, sérstaklega á sviði jarðvarma og annarrar endurnýjanlegrar orku og innlendrar orkuframleiðslu. Rannsóknarsetrið verður nýtt sem kennsluaðstaða í orkuvísindum við Keili, Háskóla Íslands og aðra innlenda skóla og kennslustofnanir. Jafnframt við rannsóknir á vegum stofnaðila sem og annara aðila.
Rannsóknarsetrið í orkuvísindum mun stórbæta alla aðstöðu til verklegrar kennslu og rannsókna í orkuvísindum á Íslandi. Markmið samningsins er fjórþætt. Í fyrsta lagi að stórefla aðstöðu á Íslandi til verklegrar kennslu og þjálfunar í verk– og tæknigreinum. Í öðru lagi að koma upp öflugri aðstöðu fyrir verklegar rannsóknir í orkuvísindum. Í þriðja lagi að efla samstarf akademíunnar og atvinnulífsins. Í fjórða lagi að ná fram sparnaði vegna samlegðar sem fæst með því að færa ákveðnar rannsóknir samningsaðila undir eitt þak.
Starfssvið rannsóknarsetursins verða rannsóknir á beislun og nýtingu orku sem hægt er að virkja á Íslandi. Megináhersla verður lögð á þróun á búnaði og aðferðum til nýtingar jarðvarma (háhita- og lághitavarma). Rannsóknasetrinu verður skipt upp í fjórar sérhæfðar rannsóknarstofur sem munu vinna náið saman. Starfssvið stofanna er: varma- og straumfræði, efnisfræði, mekatróník og efnafræði. Rannsóknasetrið verður staðsett í húsnæði Keilis, Grænásbraut 910.