HSS
HSS

Fréttir

Rannsóknarlögreglumenn úr Reykjavík til höfuðs Clint Eastwood?
Þriðjudagur 21. júní 2005 kl. 02:11

Rannsóknarlögreglumenn úr Reykjavík til höfuðs Clint Eastwood?

Ferðahópur rannsóknardeildar lögreglunnar í Reykjavík er herskár á heimasíðu sinni, FERLIR, í garð fyrirhugaðrar kvikmyndatöku Clint Eastwood og félaga á Reykjanesskaganum þar sem á að endurgera innrás Bandaríkjamanna á Iwo Jima í seinni heimstyrjöldinni. Þar segir að ef allt heldur áfram sem horfir verður Krýsuvíkursvæðinu lokað í þrjá mánuði frá 20. júní til 20. september n.k. vegna töku Hollywood-kvikmyndarinnar Iwo Jima eða Flags of our Fathers. Þeir draga upp svarta mynd af sviðsetningu Hollywood-risans og segja svæðið í Krýsuvík eiga eftir að bera varanlegt tjón af tökum myndarinnar. Lögreglumennirnir úr Reykjavík boða hins vegar að þeir ætli sér að ganga um svæðið í sumar og láta ekki öryggisverði eða kvikmyndatökur stöðva sig. Þannig á að fara á Arnarfell og skoða ýmsar merkar minjar í sumar.
Lögreglumennirnir í ferðahópnum sem myndar FERLIR draga ekkert undan á vef sínum en í Svörtu og sykurlausu má lesa samantekt á því helsta úr greininni á vef FERLIRs. Lesið samantektina hér.

Bílakjarninn
Bílakjarninn