Rangur þáttur í útsendingu
– nýjasti þátturinn í útsendingu á eftir
Rangur þáttur frá Sjónvarpi Víkurfrétta fór í útsendingu á ÍNN í gærkvöldi. Sjónvarpsþáttur Víkurfrétta verður endursýndur á tveggja tíma fresti í allan dag. Nýjasti þátturinn verður sýndur kl. 11:30 og síðan á tveggja tíma fresti fram á kvöld. Síðasta endursýning í dag er kl. 19:30.
Það er dágóður skammtur af menningu í þætti vikunnar hjá Sjónvarpi Víkurfrétta.
Rúnar Júlíusson hefði orðið 70 ára nú í aprílmánuði og það var haldið upp á það með eftirminnilegum hætti í Stapa á dögunum. Sjónvarp Víkurfrétta var þar.
Við förum líka á aðra tónleika hjá 85 ára gömlum söngfugli, Guðmundi Hauki Þórðarsyni, sem var að gefa út geisladisk.
Þá tökum við hús á Tómasi Knútssyni, herforingja Bláa hersins, sem hefur hreinsað upp 1200 tonn af rusli í 20 ára sögu hersins.
Þá förum við í Frumleikhúsið í Keflavík og kynnumst List án landamæra.