Bygg
Bygg

Fréttir

Rangt að Magma muni hagnast á mögulegri sölu til lífeyrissjóðanna
Þriðjudagur 19. apríl 2011 kl. 10:22

Rangt að Magma muni hagnast á mögulegri sölu til lífeyrissjóðanna

Lífeyrissjóðirnir hafa yfirfarið þær greiðslur og greiðslumiðla sem Magma notaði til að greiða fyrir kaup á hlutum í HS Orku og sannreynt að það uppreiknaða verð, sem sjóðunum býðst að greiða fyrir hlutinn, taki tillit til allra þátta. Því mun Magma ekki hagnast á mögulegri sölu til lífeyrissjóðanna vegna kaupa á aflandskrónum, segir í frétt frá lífeyrissjóðunum

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þessi tilkynning frá lífeyrissjóðunum kemur vegna umfjöllunar Morgunblaðsins um málið í dag, þar sem er að finna alvarlegar rangfærslur að sögn talsmanns lífeyrissjóðanna.