Fréttir

Rándýrum tækjum stolið
Föstudagur 4. maí 2012 kl. 11:31

Rándýrum tækjum stolið

Lögreglunni á Suðurnesjum barst í gærmorgun tilkynning um innbrot í fyrirtækjahótelið Eldvörp í Reykjanesbæ. Innbrotsþjófurinn er talinn hafa notað kúbein og sporðjárn við verknaðinn. Búið var að spenna upp glugga til að komast inn í þrjú fyrirtæki sem eru í byggingunni. Úr einu þeirra hafði verið stolið ljósmyndabúnaði að verðmæti um 400 þúsund krónur.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Úr öðru fyrirtæki var stolið Canon myndavél og linsu. Lögreglan biður þá sem upplýsingar geta gefið upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir við bygginguna í fyrrinótt að hafa samband í síma 420-1800.

Bílakjarninn
Bílakjarninn