Bygg
Bygg

Fréttir

Rammasamkomulag um álver í Helguvík
Miðvikudagur 31. maí 2006 kl. 21:17

Rammasamkomulag um álver í Helguvík

Meginlínur orkusamnings vegna álvers í Helguvík liggja nú fyrir og verður rammasamkomulag undirritað í fyrramálið milli Norðuráls, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja. Gert er ráð fyrir að álverið taki til starfa árið 2010 og framkvæmdir hefjist síðla næsta árs. Frá þessu var greint á NFS í kvöld.

Samkomulagið miðar við 250 þúsund tonna álver í Helguvík og verður það undirritað í golfskála Suðurnesjamanna á Leiru klukkan hálftíu í fyrramálið. Það þýðir að Norðurálsmenn hafa samið við bæði Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur um meginlínur raforkusamnings.

Samkvæmt honum munu orkufyrirtækin útvega hvort um sig um eitt hundrað megavött árið 2010 en þá er gert ráð fyrir að fyrri áfangi álversins geti tekið til starfa. Hitaveita Suðurnesja gerir ráð fyrir að fá orkuna með stækkun Reykjanesvirkjunar og með nýrri virkjun í Trölladyngju. Orkuveita Reykjavíkur hyggst fá orkuna frá Hellisheiðarvirkjun.

Norðurálsmenn hafa flýtt stækkun álversins á Grundartanga og stefna að því að ljúka henni síðla næsta árs til að geta hafist handa í Helguvík í beinu framhaldi.

www.visir.is
Bílakjarninn
Bílakjarninn