Bygg
Bygg

Fréttir

Rak vélarvana upp í Bergið
Frá vettvangi undir Berginu í Keflavík í morgun. Mynd: Halli
Föstudagur 26. ágúst 2022 kl. 10:25

Rak vélarvana upp í Bergið

Björgunarsveitarfólk úr Björgunarsveitinni Suðurnes í Reykjanesbæ var komið að makrílveiðibáti sem rekið hafði upp í Bergið við Keflavík aðeins átta mínútum eftir að útkall barst. Einn maður var á bátnum sem rak upp og sakaði hann ekki. Björgunaraðgerðir gengu vel að sögn Haraldar Haraldssonar, formanns Björgunarsveitarinnar Suðurnes, og var báturinn dreginn til hafnar í Keflavíkurhöfn.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá skipstjóra lítils fiskibáts sem sendi út neyðarkall laust eftir klukkan níu í morgun. Báturinn var þá vélarvana rétt utan við Keflavík og var við það að reka upp í bergið í norður af smábátahöfninni í Reykjanesbæ. Einn var um borð. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út á mesta forgangi en áhöfn þyrlunnar var að undirbúa æfingarflug og gat brugðist skjótt við og hélt þegar af stað á vettvang.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Sjóbjörgunarsveitir á Suðurnesjum, á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, voru jafnframt kallaðar út sem og lögregla. Skipstjóri báts sem var staddur í nágrenninu var einnig beðinn um að halda á staðinn. Klukkan 9:30, einungis rúmum tuttugu mínútum eftir að neyðarkallið barst, voru björgunarsveitir komnar með bátinn í tog. Á meðan var þyrla Landhelgisgæslunnar í viðbragðsstöðu á vettvangi ef á þyrfti að halda.

Björgunarsveitin Suðurnes hélt með bátinn í togi til Keflavíkurhafnar en viðbragð allra sem að málinu komu var snöggt og fumlaust. Enginn leki virðist hafa komið að bátnum þrátt fyrir að hann hafi nuddast utan í bergið.

Frá vettvangi í morgun. Mynd: Sigurbjörn Arnar Jónsson

Komið með bátinn til hafnar í Keflavík um kl. 10. VF-mynd: Hilmar Bragi