Ráin býður í afmælisveislu
Ráin hefur ákveðið að halda afmælisveislu þann 22. júlí fyrir alla þá íbúa Suðurnesja sem eru fæddir árið 1955 og eru því eða verða fimmtugir á árinu. Aðsjálfsögðu er mökum boðið með þó þeir séu á öðru aldursári. Rúnar Júl spilar eftir borðhaldið og heldur uppi fjörinu.
„Þetta er hugmynd sem er búin að fylgja okkur í nokkurn tíma eða frá því að ég varð fimmtugur,“ sagði Björn Vífill Þorleifsson. Það var hins vegar ákveðið að láta slag standa núna þar sem Guðmundur Símonarson er fimmtugur í ár.
„Þetta er góður árgangur og á að vera búinn að koma sér fyrir hvað varðar að eiga uppkomin börn og annað. Einnig eru flestir í þessum árgangi búnir að versla við okkur í þessi 16 ár sem Ráin hefur verið starfrækt,“ sagði Guðmundur. „Það er líka alltaf verið að gera eitthvað fyrir þá sem yngri eru og hér er því kjörið tækifæri til að gera eitthvað fyrir minn aldurshóp! Ef vel gengur þá gæti þetta orðið að árlegum viðburði.“
„Þetta er svo auðvitað sá hópur sem var hvað duglegastur við að stunda Klúbbinn og Glaumbæ alla fimmtudaga, föstudaga og laugardaga. Nú kíkir þetta fólk einstaka sinnum út en oftast bara á laugardögum. Ágætt að nota þetta tækifæri til að minna fólk á að það er hægt að gera ýmislegt á öðrum dögum,“ sagði Guðmundur.
Matarboðið verður haldið föstudaginn 22. júlí og varð sá dagur fyrir valinu þar sem hann stangast ekki á við aðra atburði sem eru í gangi á Suðurnesjum. Panta þarf borð ekki seinna en miðvikudaginn 20. júlí hjá Ránni.