Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ragnheiður Elín í toppbaráttuna hjá Sjálfstæðisflokki í Suðurkjördæmi
Fimmtudagur 19. febrúar 2009 kl. 10:16

Ragnheiður Elín í toppbaráttuna hjá Sjálfstæðisflokki í Suðurkjördæmi

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ragnheiður Elín Árnadóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér til forystu Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og óska eftir stuðningi í 1. sæti listans í prófkjöri sem fram fer 14. mars.„Þetta er ákvörðun sem kemur frá hjartanu. Ég er á leið heim,“ segir Ragnheiður sem er fædd og uppalin í Keflavík.

Í frétt frá Ragnheiði segir: „Undanfarnar vikur hefur verið kallað eftir breytingum og endurnýjun í forystusveit flokksins í kjördæminu. Mikilvægt er að nýta þann kraft sem á að endurspeglast í opnum og lýðræðislegum prófkjörum og forsenda þess er að sjálfstæðismenn um allt land hafi val um frambjóðendur. Ég hef verið hvött til þess að færa mig um set og bjóða mig fram til að leiða lista flokksins í Suðurkjördæmi og hef fundið fyrir miklum stuðningi góðs fólks alls staðar að úr kjördæminu. Ég hef ákveðið að taka þeirri áskorun.

Ég er borin og barnfæddur Keflvíkingur og bjó þar í foreldrahúsum fram yfir háskólanám. Ég  á þar fjölskyldu og vini og þekki því vel til þeirra mála sem skipta miklu máli í kjördæminu. Ég hef mikinn áhuga á að vinna að þeim málum af heilum huga og því er þátttaka í stjórnmálum í Suðurkjördæmi  mikil og spennandi áskorun. Um leið er hún tækifæri fyrir mig til að snúa aftur á heimaslóðir. Ég hlakka til að vinna með sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi að þeim fjölmörgu brýnu málum sem framundan eru og tilheyra þeirri liðsheild sem mun mynda nýja forystusveit í kjördæminu.“