Rafmagnslaust í Garði. Sandgerði, Ásbrú og Höfnum í nótt
Vegna viðhaldsvinnu í aðveitustöð í Aðalgötu aðfaranótt fimmtudags. 09.11.17 verða sveitarfélögin Sandgerði og Garður án rafmagns á meðan vinnu stendur.
Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 24:00 (miðnætti) og komið á aftur eigi síðar en kl. 02:00.
Samhliða vinnu okkar í Aðalgötu þá verður jafnframt unnið í aðveitustöð á Ásbrú en sú vinna kallar einnig á rafmagnsleysi á Ásbrú og í Höfnum. Gera má ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 24:00 og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 06:00.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum okkar.
Nánar inn á heima- og á Facebook síðu fyrirtækisins, www.hsveitur.is