Rafmagn komið á austurhluta Grindavíkur
Snemma í morgun hófu vinnuflokkar HS Veitna bilanaleit og síðan viðgerð á rafstreng og búnaði sem höfðu bilað og valdið rafmagnsleysi á stórum hluta Grindavíkur í lok dags í gær. Vel tókst til við að finna bilunina og viðgerð lauk nú um kl. 17:15, segir í tilkynningu frá HS Veitum.
Vinnuflokkar HS Veitna voru einnig í dag í bilanaleit og aðgerðum til að koma í veg fyrir mikinn leka sem varð vegna bilunar í hitaveitunni og lauk þeirri aðgerð fyrir hádegi.
Í báðum tilfellum er um að ræða slit á rafsteng og lögnum þar sem stóra sprungan liggur þvert í gegn um bæinn.
Í ljósi þess að jarðsig og gliðnun halda áfram í Grindavík er ómögulegt að segja hvert framhaldið verður.
Í spilaranum að neðan er beint streymi RÚV sem sýnir Grindavík.