Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Rafmagn kemst á Grindavík síðar í vikunni
Rafmagnstengingin til Grindavíkur fór illa í eldgosinu. VF/Hilmar Bragi
Þriðjudagur 4. júní 2024 kl. 18:19

Rafmagn kemst á Grindavík síðar í vikunni

Enn er rafmagnslaust í Grindavík eftir að loftlína frá Svartsengi til Grindavíkur skemmdist verulega þegar rafmagnsstaurar eyðilögðust vegna glóandi hrauns. Framkvæmdanefnd vegna málefna Grindavíkur, HS Veitur og bæjarstjórn Grindavíkur fundaði í gær. Verkefni fundarins var að tryggja rafmagn í bænum en það fór af þegar gos hófst í síðustu viku.

Til að koma rafmagni aftur á Grindavík er ætlunin að leggja varaleið frá Svartsengi til Grindavíkur. Lausnin felst í að nýta fyrirliggjandi strengi HS Orku og HS Veitna á þessari leið og að auki leggja nýjan streng um 4,3 kílómetra niður svokallaðan niðurdælingarveg. Ennfremur þarf að leggja um 900 metra af jarðstreng framhjá nýja hrauninu sem fór yfir Nesveg, í stað þess strengs sem varð þar undir hrauni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þessi varatenging hefur takmarkaða aflgetu en á að anna þeirri rafmagnsnotkun sem verið hefur í bænum síðustu mánuði. Unnið verður á vöktum næstu sex sólahringa til að klára tenginguna. Á meðan á framkvæmdum stendur verða tvær öflugar varavélar frá Landsneti í notkun á svæðinu til að knýja atvinnulíf í Grindavík þar til rafmagn kemst aftur á bæinn.