Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Raflagnir á Vellinum löglegar eftir lagasetningu
Föstudagur 6. júlí 2007 kl. 16:57

Raflagnir á Vellinum löglegar eftir lagasetningu

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar fékk í dag frest til 1. okt. 2010 til að breyta raflögnum og rafföngum í íbúðar- og skólasvæði á gamla varnarsvæðinu svo þau samræmist íslenskum stöðlum. Ríkisstjórnin afgreiddi í morgun bráðabirgðarlög þess efnis að núverandi lagnir, sem eru að bandarískum stöðlum, sé heimilt að nota fram að þeim tímamörkum.

 

Tilkynning frá viðskiptaráðuneyti er svohljóðandi:

Forseti Íslands hefur í dag undirritað lög sem afgreidd voru á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun þess efnis að heimilt sé að nota raflagnir og rafföng í núverandi ástandi á íbúðar- og skólasvæði fyrrum varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli til 1. október 2010. Raflagnir og rafföng eru í samræmi við bandaríska staðla og uppfylla því ekki þær kröfur sem gerðar eru í íslenskum lögum og reglugerðum. Því er ljóst að skipta verður um raflagnir innan svæðisins. Það er viðamikið verkefni og mun hafa mikinn kostnað í för með sér. Skólastarf hefst á svæðinu haustið 2007 og til stendur að afhenda fyrstu íbúðir þar um miðjan ágúst. Ómögulegt er talið að koma raflögnum í rétt ástand fyrir þann tíma, auk þess sem erfitt er að fá iðnaðarmenn til starfsins.

Samkvæmt lögunum er Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar ehf. gert skylt að leggja fram verkáætlun til Neytendastofu fyrir 1. október 2007 um hvernig staðið verði að breytingum til samræmis við íslenskar kröfur fyrir 1. október 2010.

 

Loftmynd/Oddgeir Karlsson

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024