Rætt um aðgerðir gegn hraðakstri á Faxabraut
Umhverfis- og skipulagssviði Reykjanesbæjar barst á dögunum ósk um að hámarkshraða á Faxabraut á milli Hafnargötu og Hringbrautar yrði breytt úr 50km/klst í 30 km/klst. Þar er dvalarheimilið Hlévangur til húsa og er skemmst að minnast banaslyss sem varð þar í götunni á síðasta ári.
USK ályktaði sem svo að réttara væri að skoða endurgerð götunnar en óskaði jafnframt eftir umsögn Lögreglunnar á Suðurnesjum.
Málið kom til umræðu á síðasta bæjarstjórnarfundi Reykjanesbæjar þar sem Guðbrandur Einarsson, A-lista, spurði hvers vegna meirihlutinn hafi lagst gegn þessari ósk.
Steinþór Jónsson, Árni Sigfússon og Þorsteinn Erlingsson tóku til máls og sögðu að meiri líkur væru á að umferðarhraði minnkaði við það að breyta götunni heldur en að skipta um skilti, en ekki væri verið að útiloka hinn kostinn alfarið.
VF-mynd/Þorgils - Rætt er um aðgerðir til að hamla hraðakstri á þessum vegakafla.