Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ræktaði og seldi marihuana
Fimmtudagur 29. desember 2005 kl. 10:09

Ræktaði og seldi marihuana

Mikið magn af marihuana, eða um 250 grömm, fannst í aðgerð lögreglu í gærkvöldi, en auk þess fundust rúmlega 60 marihuanaplöntur í atvinnuhúsnæði í Sandgerði. Einn maður var handtekinn vegna málsins.

Lögregla hafði afskipti af karlmanni á fimmtugsaldri vegna gruns um að hann ræktaði og framleiddi eiturlyf. Í bifreið mannsins fundust um 120 gr af efninu og enn meira fannst á heimili hans í Reykjavík. Þar fundust líka kannabisfræ og rúmlega 100.000 kr í peningum.

Samtals var lagt hald á um 250 gr af marihuana auk plantnanna og tæki og tól til framleiðslu.

Maðurinn var látinn laus eftir yfirheyrslur. Um var að ræða samstarfsverkefni lögreglunnar í Keflavík og lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024