Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Ráðstefna um heilsu og forvarnir
Þriðjudagur 17. apríl 2018 kl. 06:00

Ráðstefna um heilsu og forvarnir

Reykjanesbær heldur ráðstefnu um heilsu og forvarnir í Stapa miðvikudaginn 16. maí. Ráðstefnan hefst með hádegisverði kl. 12:30 þar sem boðið verður upp á súpu. Formleg dagskrá hefst kl. 13:00.
Rannsókn og greining mun kynna niðurstöður könnunar á hegðun og líðan ungmenna. Nokkrar nýjar spurningar voru lagðar fram í síðustu könnun og niðurstöður eru athyglisverðar.

Þá verður kynning á starfsemi samtakahópsins kynnt. Að lokum verður púlsinn á verkefninu Heilsueflandi samfélag tekinn og hugað að næstu skrefum innan Reykjanesbæjar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Nauðsynlegt er að skrá sig á ráðstefnuna, hér er hægt að skrá sig.