Mánudagur 5. mars 2018 kl. 12:47
Ráðning skólastjóra Gerðaskóla kynnt á miðvikudag
Alls sóttu sex umsækjendur um auglýsta stöðu skólastjóra Gerðaskóla í Garði. Jóhann Geirdal, sem nú gegnir stöðunni, sagði upp starfi sínu á dögunum frá og með næsta skólaári.
Tillaga um ráðningu skólastjóra verður lögð fyrir fund bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Garðs nk miðvikudag, þann 7. mars.