Bygg
Bygg

Fréttir

Þriðjudagur 26. september 2000 kl. 10:53

Ráðist á álfana við Hraunsveg

Árni Júlíusson, Húsasmiðjukóngur og Sólveig Steinunn Jónsdóttir (Veiga), eiginkona hans hafa undanfarin 7 ár safnað garðálfum og fleiri fallegum hlutum í garðinn sinn við Hraunsveg í Njarðvík. Fram að þessu hefur garðurinn fengið að vera í friði en nú í sumar hafa skemmdarvargar lagt leið sína um hann oftar en einu sinni. Tjónið nemur tugum þúsunda en það er ekki síður tilfinningalegt fyrir garðeigendurna. „Við vorum bæði heima í sumar þegar við heyrðum skruðninga fyrir utan gluggann. Þá sáum við þrjá drengi, á aldrinum 8-9 ára, vera að drösla álfahúsinu okkar yfir í næsta garð. Árni talaði við þá en þeir gátu ekki sagt hvar þeir ættu heim eða hverjir foreldrar þeirra væru. Nokkru síðar fórum við í ferðalag til Akureyrar og þegar við komum heim var búið að brjóta stóran álf og þrjú garðljós og stela 3-4 álfum og einni kanínu“, segir Veiga. Að sögn Veigu hafa þau aldrei lent í þessu áður og þeim finnst mjög leiðinlegt að geta ekki fengið að hafa garðinn í friði. „Maður er að gera þetta til að hafa gaman af og það er leiðinlegt að vita af þessu. Ég er farin að hugsa mikið um næsta sumar. Ég held ég gefist upp á að hafa litlu stykkin, þeim er bara stolið. Ég vona bara að þetta verði látið vera um jólin“, segir Veiga. Fyrr í sumar var stórum svepp stolið úr garðinum en honum var skilað aftur og þótti þeim hjónum mjög vænt um það. „Ég yrði mjög ánægð ef hinum hlutunum yrði líka skilað“, segir Veiga.
Bílakjarninn
Bílakjarninn