Bragi Guðmundsson - Báruklöpp
Bragi Guðmundsson - Báruklöpp

Fréttir

Ráðinn verkefnastjóri Reykjanes Geopark
Föstudagur 11. maí 2012 kl. 10:04

Ráðinn verkefnastjóri Reykjanes Geopark

Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja hefur ráðið Eggert Sólberg Jónsson sem verkefnastóra Reykjanes GeoPark en alls bárust 32 umsóknir um stöðuna.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa skrifað undir samkomulag um stofnun jarðvangs á Reykjanesi sem hefja mun umsóknarferli til European Geoparks Networks en bundnar eru vonir við að árangur verkefnisins skili sér í aukningu ferðafólks á svæðinu, eflingu vísindarannsókna, aukna samvinnu og uppbyggingu í ferðaþjónustu og dýpri og aukinni þekkingu á viðfangsefninu jarðvangur.

Eggert er með meistarapróf í þjóðfræði og hefur góða reynslu af undirbúningi jarðvangs en hann sat m.a. í undirbúnings- og verkefnahópi um Kötlu jarðvang auk þess sem hann hefur starfað sem forstöðumaður Kötluseturs. Eggert býr í Grindavík ásamt fjölskyldu sinni.


Vegna legu sinnar og áhugaverðra jarðsögu- og menningarminja er Reykjanes tilvalið svæði fyrir jarðvang en áhersla verður lögð á að nýta þá sérstöðu til áframhaldandi þróunar og uppbyggingar á Suðurnesjum.

Eggert verður með aðsetur hjá Heklunni í Eldey þróunarsetri á Ásbrú.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25