Bygg
Bygg

Fréttir

Ráðið í stöður sviðsstjóra hjá Reykjanesbæ
Fimmtudagur 12. mars 2015 kl. 12:48

Ráðið í stöður sviðsstjóra hjá Reykjanesbæ

Gengið hefur verið frá ráðningu fimm sviðsstjóra hjá Reykjanesbæ auk hafnarstjóra. Alls bárust 73 umsóknir um störfin en fjórir umsækjendur drógu umsóknir sína til baka meðan á ferlinu stóð.

Hlutverk nýrra sviðsstjóra Reykjanesbæjar er að leiða svið bæjarins og vinna með bæjarstjóra og kjörnum fulltrúum að úrbótum og breytingum sem framundan eru og eru til þess fallnar að auka gæði og skilvirkni stjórnsýslunnar, flýta afgreiðslu mála, tryggja úrbætur á verklagi og verkaskiptingu.

Tveir fyrrum framkvæmdastjórar verða í sviðsstjórahópnum og einn til viðbótar sem hefur sinnt stöðunni tímabundið. Í öðrum stöðum eru nýir stjórnendur hjá Reykjanesbæ sem öll eiga það þó sameiginlegt að hafa víðtæka þekkingu og reynslu bæði á sviði sveitarstjórnarmála og utan þeirra.

Nýju sviðsstjórarnir eru:

Hera Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs

Helgi Arnarson, sviðsstjóri fræðslusviðs

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs

Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri nýs stjórnsýslusviðs

Þórey I Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs

Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri


Nýtt skipurit Reykjanesbæjar mun taka gildi þann 1. júní n.k.

Bílakjarninn
Bílakjarninn