Bygg
Bygg

Fréttir

Ráðið í nýja stöðu án auglýsingar
Þriðjudagur 11. mars 2008 kl. 09:51

Ráðið í nýja stöðu án auglýsingar

Fulltrúar minnihlutans (F) í bæjarstjórn Garðs hafa ýmislegt að athuga við þá ákvörðun meirihlutans (N) að útbúa nýja stöðu fulltrúa skóla,- menningar,- og jafnfréttismála án þess að hún sé auglýst sérstaklega. Þeir telja stöðuna skarast við önnur störf í stjórnsýslu bæjarsins og ekki sé rétt að búa til stöðu fyrir stjórnendur sem hafi áhuga á að skipta um starfsvettvang.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þetta kemur fram í bókun sem F-listinn lagði fram á síðasa bæjarstjórnarfundi í Garði. Þar lá fyrir til afgreiðslu ósk Ernu Sveinbjarnardóttur, skólastjóra, um tilfærslu í starfi.
Í fundargerð kemur fram að N-listinn telji mikla þörf á starfi Skóla,- menningar.- og jafnréttisfulltrúa í Garði en með því starfi verði stjórnsýsla bæjarins bætt til muna.

Ásamt því að vinna að menningarmálum verði fulltrúinn einnig starfsmaður nefnda og geri það framkvæmd verkefna skilvirkari auk þess að vinna að stefnumörkun í jafnréttis- og fjölmenningarmálum en sveitarfélaginu beri að marka skýra stefnu í þessum málaflokkum.

Tekið er fram að starfið muni m.a. spara kostnað við sérfræðiþjónustu og það sé tímabundið til 2ja ára. Kostnaðarauki vegna launa og launatengdra gjalda á árinu 2008 verði 2,9 milljónir.

„Fulltrúar F-listans telja ekki rétt að útbúin sé ný staða fulltrúa skóla-, menningar-, og jafnréttismála hjá sveitarfélaginu samanber drög af starfslýsingu sem liggur fyrir. Fulltrúar F-listans telja að í starfslýsingunni skarist hlutverk fulltrúans við störf skólamálaskrifstofu og skólastjórnenda. Þá eru önnur störf fulltrúans sem tilgreind eru í drögunum störf sem unnin eru af nefndum bæjarins, starfsmönnum skrifstofu bæjarins sem og bæjarstjóra.

Fulltrúar F-listans telja einnig að hér sé um fordæmisgefandi dæmi að ræða þar sem ný staða er búin til fyrir stjórnendur sem hafa áhuga á að breyta um starfsvettvang, ekki sé rétt að fara þá leið. Sé það hinsvegar ætlunin að útbúa nýja stöðu hjá bænum teljum við rétt að farið sé í mat á því hver þörfin sé og staðan síðan auglýst þar sem núverandi starfsmenn bæjarins sem og aðrir eigi möguleika á að sækja um á jafnréttisgrundvelli,“ segir í bókun F-lisans vegna málsins.

Tilfærsla Ernu í starfi var samþykkt með 4 atkvæðum N-lista, fulltrúar F-lista greiddu á móti.