Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ráðherrar svara spurningum á borgarafundi
Þriðjudagur 26. október 2010 kl. 14:40

Ráðherrar svara spurningum á borgarafundi

Borgarafundur nr. 2 um atvinnumál á Suðurnesjum verður haldinn í Stapa fimmtudaginn 28. október kl. 16:30 undir kjörorðinu Nú viljum við fá skýr svör frá stjórnvöldum.
 
Ráðherrar úr ríkisstjórn, formaður iðnaðarnefndar, þingmenn kjördæmisins og oddvitar sveitarstjórna á svæðinu sitja fyrir svörum.
 
Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi hvetja stjórnendur fyrirtækja til að gefa starfsfólki sínu frí frá kl. 16:30 svo fólk geti fjölmennt á fundinn. Nú skal fylla Stapann.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024