Ráðherra vill vinna hratt að lausn læknadeilunnar

„Heilsugæslulæknar hafa lagt fram ákveðnar hugmyndir til að leysa deiluna og við einnig. Við erum að skoða tiltekin atriði og ég legg mikið upp úr því að hratt verði unnið í málinu til að leysa þá spennitreyju sem þetta mál er komið í," sagði ráðherra.
„Ég held að það sé ekki skynsamlegt að greina frá því hvað okkur fór á milli á fundinum. Það var jákvætt andrúmsloft og við hittumst aftur síðar í vikunni. Ég er tiltölulega bjartsýnn á að við náum sameiginlegum grundvelli," sagði Jón Kristjánsson.