HSS
HSS

Fréttir

Ráðherra spurður um geislavirkni á Reykjanesi
Fimmtudagur 17. september 2015 kl. 18:08

Ráðherra spurður um geislavirkni á Reykjanesi

Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður hefur komið með fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um geislavirk efni við Reykjanesvirkjun.

„Hvað veldur því að ráðherra hefur ekki upplýst almenning um geislavirk efni við Reykja-
nesvirkjun, í nágrenni vinsælla útivistarsvæða og vatnsveitusvæða, í ljósi þess að fram hefur komið að ráðherra hafi verið upplýstur um málið sl. vor og stjórnvöld hafa frumkvæðisskyldu til þess að veita upplýsingar í umhverfismálum?,“ spyr þingmaðurinn á Alþingi í dag.

Athuganir síðustu ára sýna að nokkuð magn málmríkra útfellinga myndist í lögnum virkjunar HS Orku á Reykjanesi, t.d. blý, sink, gull og silfur. Nýlegar rannsóknir á útfellingum hafa einnig staðfest að í einstaka sýnum mælist aukin náttúruleg alfa og beta geislun sem stafi líklega frá þessum málmum og er mikilvægt að rannsaka frekar. Slík uppsöfnun á sér ekki stað í orkuverinu í Svartsengi.

Í tilkynningu á vef HS Orku segir: „Til að ýtrustu öryggiskröfum sé fullnægt hafa Geislavarnir ríkisins beint því til HS Orku að þeir einstaklingar sem vinna við hreinsun á þessum útfellingum beri viðeigandi hlífðarbúnað“.

Bílakjarninn
Bílakjarninn