Fréttir

Ráðherra slökkti elda í Keflavík
Fimmtudagur 21. nóvember 2013 kl. 16:37

Ráðherra slökkti elda í Keflavík

- Slökkviliðsmenn hvetja fólk til að efla eldvarnir á heimilum

Slökkviliðsmenn um allt land taka þátt í Eldvarnaátaki Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) í aðdraganda hátíðanna. Þeir hvetja almenning til að efla eldvarnir á heimilum en kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru ófullnægjandi á mörgum heimilum og íbúarnir því berskjaldaðir fyrir eldsvoðum. Ungt fólk og leigjendur eru þar í mestri hættu samkvæmt könnunum sem Capacent Gallup hefur gert fyrir LSS og Eldvarnabandalagið.

Allt of mörg heimili hafa engan eða of fáa reykskynjara. Þau fengju því litla eða enga viðvörun ef eldur yrði laus að næturlagi. Innan við helmingur heimila er með eldvarnabúnað sem slökkviliðsmenn telja lágmarksbúnað, það er reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi. Nú fer í hönd tími þegar eldhætta eykst á heimilum. Slökkviliðsmenn hvetja fólk því til að grípa til viðeigandi varúðarráðstafana.

Lágmarkseldvarnir á heimilum eru:
- Reykskynjarar, tveir eða fleiri.
- Slökkvitæki við helstu flóttaleið.
- Eldvarnateppi á sýnilegum stað nálægt eldavél.


Mjög vantar á að þessi lágmarksbúnaður sé almennt á heimilum landsmanna. LSS efnir því til átaks um að fræða fólk um eldvarnir og mikilvægi þeirra dagana 21.-29. nóvember. Þá heimsækja slökkviliðsmenn um allt land á fimmta þúsund átta ára börn í grunnskólum til að fræða þau og fjölskyldur þeirra um eldvarnir. Þeir birta einnig auglýsingar í fjölmiðlum til að minna fólk á mikilvægi reykskynjara.

Átakið hófst í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ í dag. Þar fræddu starfsmenn Brunavarna Suðurnesja börn um eldvarnir með aðstoð Sigurðar Inga Jóhannssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra. Í kjölfarið fá allir grunnskólar í landinu heimsókn frá slökkviliðinu sínu. Slökkviálfarnir Logi og Glóð aðstoða við fræðsluna og fá öll börn í 3. bekk söguna af hetjulegri baráttu þeirra systkina við Brennu-Varg að gjöf. Í sögunni er eldvarnagetraun og eru vegleg verðlaun í boði fyrir þá sem senda LSS réttar lausnir. Krakkarnir fá einnig handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimila með sér heim.
Helstu styrktaraðilar Eldvarnaátaksins eru Mannvirkjastofnun, 112, Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, TM og slökkviliðin í landinu.

























VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024