Ráðgjafi Íslandsstofu í Eldey
Er fyrirtæki þitt á leið í útflutning?
	Erna Björnsdóttir, verkefnastjóri frá Íslandsstofu, mun halda hádegiserindi í Eldey frumkvöðlasetri, Grænásbraut 506 á Ásbrú í dag, þriðjudaginn 21. október þar sem kynnt verða helstu atriði sem hafa þarf í huga þegar stefnt er á útflutning. Kynnt verður þjónusta Íslandsstofu og geta áhugasamir pantað 20 mín viðtalstíma í kjölfarið þar sem hægt er að ræða hugmyndir og spyrja frekari spurninga.
	
	Skráning á viðtalstíma fer fram á heklan.is.
	
	
	
	 


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				