Qmen-stúlkan valin á morgun

Tugir þúsunda hafa skoðað myndirnar af stelpunum á netinu og lýsir það vinsældum keppninnar sem haldin er nú í annað skiptið. Undirbúningur keppninnar er á lokastigum og að sögn aðstandenda verður keppnin flott með nýtískulegu yfirbragði. Dómarar keppninnar eru Rakel frá Mangó, Atli Már ljósmyndari Víkurfrétta, Fjölnir Þorgeirsson athafnamaður, Ásdís Rán eigandi Model.is og Kalli Lú útvarpsmaður hjá FM957.
Húsið opnar klukkan 22:00 en keppnin hefst 23:30. Idol stjarnan Kalli Bjarni mun troða upp á meðan keppninni stendur en síðan mun Hljómsveitin 6volt taka við. Þegar hún hefur lokið sér af kemur það í hlut Dj. Stjána að trylla mannskapinn og mun hann spila fram á rauða nótt. Fríir fordrykkir verða í boði á milli 22:00 og 00:00 en miðaverð fyrir skemmtunina er aðeins 1500 kr.-
Netverjar geta enn haft áhrif á val Qmen stúlkunnar með því að velja sína stúlku á vefsíðu Víkurfrétta. Hún er valin með því að ýta á auðkenni Qmen stúlkunnar til hægri á vefsíðu Víkurfrétta. Þar birtast allar stúlkurnar og er kosningin neðst á þeirri síðu.