Próflaus og útúr dópaður með kylfu í bílnum
Ökumaður á þrítugsaldri, sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í vikunni, reyndist vera undir áhrifum amfetamíns, metamfetamíns og kannabisefna við aksturinn, auk þess sem hann hafði aldrei öðlast ökuréttindi.
Þá var bifreiðin sem hann ók ótryggð og óskoðuð. Maðurinn framvísaði amfetamíni sem var í bifreiðinni, auk þess sem lögreglumenn fundu útdraganlega kylfu í hólfi í henni. Skráningarnúmerin voru fjarlægð af bifreiðinni.
Tveir ökumenn til viðbótar, sem lögreglan hafði afskipti af reyndust einnig vera undir áhrifum fíkniefna. Í húsleit á dvalarstað annars þeirra fundust meint fíkniefni í sölupakkningum, að hluta til meint MDMA. Einnig munir sem bentu til dreifingar og sölu fíkniefna og fjármunir sem voru haldlagðir.