Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Próflaus með börn sín í bílnum
Mánudagur 16. janúar 2017 kl. 12:40

Próflaus með börn sín í bílnum

Ökumaður, sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í gær, reyndist hafa verið sviptur ökuréttindum. Hann var að auki með tvo syni sína í bílnum. Barnaverndarnefnd var tilkynnt um atvikið.

Þá voru nokkrir ökumenn staðnir að hraðakstri. Sá sem hraðast ók mældist á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Eitthvað var um umferðaróhöpp um helgina en þau voru minni háttar og engin alvarleg slys urðu á fólki.