Próflaus fékk lánaðan bíl út í búð
Tvö umferðaróhöpp urðu í Reykjanesbæ í gærdag. Það fyrra á Hafnargötu og það síðara, sem var nokkuð harður árekstur á gatnamótum Sólvallargötu og Faxabrautar. Flytja þurfti bifreiðarnar af vettvangi með dráttarbifreið. Engin meiðsli urðu á ökumönnum. Annar ökumannana hafði ekki öðlast ökuréttingi en fengið bifreiðina að láni til að skreppa út í búð.




