Prófaði bíl í Reykjavík: handtekinn í Keflavík
Lögreglan í Keflavík handtók mann seinnipartinn í gær í Keflavík á bifreið sem hann hafði fengið lánaða til prufu á bílasölu í Reykjavík. Í bílnum fundust hlutir sem ekki voru í bílnum þegar hann fékk hana lánaða á bílasölunni. Maðurinn gistir nú fangageymslur Lögreglunnar í Keflavík og verður yfirheyrður síðar í dag.